Wednesday, June 25, 2008

Brussel var það heillin....

Ég sé að í síðasta bloggi mínu frá Miami skrifaði ég að Elvis hefði yfirgefið bygginguna og að sú bloggfærsla væri því sú síðasta en með þeim fyrirvara að ef við flyttum aftur frá Íslandi myndum við e.t.v. hefja skrif aftur. Ekki datt mér í hug þá að við myndum flytja aftur frá Íslandi aðeins ári seinna. En sú er víst raunin og til þess að halda ykkur vinum okkar og ættingjum vel upplýstum um okkar gjörðir og hugsanir ákváðum við að taka upp þráðinn á ný, í þetta skiptið frá Brussel.

Ekki get ég lofað eins framandi og skemmtilegum færslum og frá Miami á sínum tíma, sá tími var náttúrulega eitt stórt ævintýri þar sem fyrirbæri eins og krókódílar, eðlur, Key West, South beach, S-amerískir vinir, Golden gate, NY, komu m.a. við sögu. Hinsvegar stefnir allt í nokkuð viðburðarríkt fyrsta ár hér úti og eftir þessa fyrstu mánuði er svo mikið að segja frá að ég held að það sé best að segja þá sögu í myndablogginu. En eins og lesendur Miami-bloggsins vita, þá skiptum við þessu bloggi í tvo hluta, annarsvegar þessi almenni hluti sem þú ert að lesa núna og hinsvegar myndabloggið sem nálgast má hér. Kíkið endilega á myndabloggið í leiðinni því myndir segja jú meira en mörg orð ;)

Meðal þess helsta sem við höfum gert fyrstu mánuðina hér í Belgíu:

- Kaup 0g samsetning á c.a. 11 Ikea mubblum (húsbóndinn krefst diplóma frá IKEA eftir þessa törn)
- Búin að koma okkur nokkuð vel fyrir í íbúðinni okkar að Livourne stræti
- Höfum fengið fjórar mjög skemmtilegar heimsóknir, fyrst Kötu tengdó, svo Halla bróður og Estefan son hans, þar næst Dóra Sif sem stoppaði aðeins í eina nótt að þessu sinni (lofar að vera lengur næst ;), og að lokum Benni bróðir og Gunni vinur hans.
- Við höfum farið í ferðir til Normandy í Frakklandi, Paríar, Kölnar, Sigfús hefur farið tvisvar í Ardennafjöllinn (annað skiptið í göngu og hitt skiptið í kayakferð), Erna er búin að fara í eina vinnuferð til Íslands (Vestmannaeyja). Framundan eru svo ferðir til Brugge, Berlínar og tveggja vikna ferð til Ítalíu.
- Við erum búin að vera mjög dugleg í "sósíallífinu", höfum kynnst fullt af nýju skemmtilegu fólki og einnig hitt hér gamla vini og kunningja frá fyrri tíð.
- Svo erum við að fara á tónlistarhátíð hér í Belgíu 6. júlí þar sem Radiohead og Sigur rós munu spila.

Sem sagt búið að vera ansi viðburðarríkur tími og ég held að besta leiðin sé að segja nánar frá honum með myndum og myndtexta. Þær nálgist þið eins og áður segir á myndablogginu okkar.

Ég ákvað í þetta skiptið að hafa bloggið læst þannig að nú þurfið þið að koma ykkur upp svokölluðum google aðgangi til að geta lesið bloggið. Það fylgja leiðbeiningar um það með boðinu um lestur bloggsins en ef þið eruð með gmail þá þurfið þið ekkert að hugsa frekar um þetta þar sem þið getið notað aðgangsorðin ykkar þar þegar þið loggið ykkur inn hér.

Wednesday, February 07, 2007

Elvis has left the building!

Það verður einhver pása á bloggi hér á blogspot í bili. Þetta blogg var hugsað sem upplýsingagjöf við vini og vandamenn heima á Fróni og einnig sem einskonar dagbók Bandaríkjadvalarinnar fyrir okkur hjónin. Þar sem við erum nú flutt heim gerist síður þörf á slíkri starfsemi og setjum við því síðuna í salt þar til við tökum upp á því að flytja eitthvert út aftur, þ.e. ef það verður þá einhverntíman. Við þökkum þeim sem heimsóttu okkur hér í vefheimum og vonum að þið hafið haft gaman af.

Húsbóndinn hefur nú opnað nýtt blogg, www.sigfus.blog.is, þar sem hann rausar um pólitík og samfélagsmál. Endilega lítið reglulega þar inn ef þið hafið áhuga og tíma. Einnig er planið að byrja að blogga fyrir vini okkar í Bandaríkjunum og S-Ameríku og verður það þá að sjálfsögðu á ensku (nema við förum á hraðnámskeið í spænsku) og verður slóðin þá væntanlega www.sigfusanderna.blogspot.com.

Yfir og út.......

Wednesday, January 31, 2007

Lokablogg frá Holly

Nú er dvöl okkar hér í S-Flórída lokið í bili að minnsta kosti. Ótrúlega viðburðarrík og skemmtileg dvöl, ævintýri líkast. Það eru blendnar tilfinningar við þessi tímamót, margt sem við munum sakna héðan en jafnframt margt að hlakka til við að fara heim. Á myndablogginu er nú kominn síðasti skammturinn héðann en síðustu dagarnir hafa verið viðburðarríkir. Njótið.

Hittumst hress á Fróni.

Tuesday, January 23, 2007

Kaliforníupistill - Loksins, loksins, loksins

Jæja, loksins kom að því. Maraþonfærsla um kaliforníuævintýri okkar hjóna loksins náð síðum internetsins. Það tók nokkurn tíma að lenda eftir ævintýrið og svo vissi ég að þetta yrði ansi mikið verk og því tók frestunaráráttan yfirhöndina. Þetta var um 12 daga ferðalag og tvær myndavélar með í för og því af nógu að taka. Reyndi að grisja úr myndabunkanum eins og ég gat en einhvernveginn endar maður alltaf með alltof margar myndir. Biðst fyrirfram afsökunar á því.

Það er því um að gera að hella upp á eins og 12 bolla af kaffi, taka upp vökustaurana og hefja skoðun og lestur. Takið ykkur frí frá vinnu í eins og eina viku og þá ættuð þið að vera í góðum málum.

Njótið vel.

Sigfús A. Ofgeran

Wednesday, January 03, 2007

Jólahald, áramót og Woody Allen

Við komum úr siglingunni um karabíska hafið snemma á aðfangadag. Það voru því ferðalúin hjón sem komu í íbúðina sína í Hollywood á þessum mikla hátíðisdegi. Húsbóndinn hafði náð sér í inflúensu á síðustu dögum siglingarinnar og því ekki líklegur til stórræðanna hvað jólahald varðaði. Náði samt að rífa mig upp og fara í verslunarleiðangur í Publix þar sem gerð voru stórinnkaup fyrir jólin. Keypti m.a. jólaskinku, rauðkál (já það fæst hér) ávexti í waldorfsalad, gular baunir og þessar helstu nauðsynjar. Elduðum svo herlegheitin saman og opnuðum fína rauðvínsflösku. Opnuðum því næst þá 3-4 pakka sem höfðu borist áður en við fórum en hinir voru allir úti á pósthúsi þar sem þeir biðu okkar milli jóla og nýárs. Spiluðum íslensk jólalög og höfðum það notalegt.

Á jóladag var okkur svo boðið til Gennevie samstarfskonu og vinkonu Ernu og manns hennar Dale. Þar fengum við mjög framandi jólamáltíð í formi einskonar kínversks fondús þar sem þunnt skorið kjöt og grænmeti var sett í pott á miðju borðinu og það svo veitt upp og borðað. Mjög skemmtileg jólamáltíð á alþjóðlegu heimili en Gennevie er upprunalega frá Kína.

Þann 29. desember áttum við miða á jazztónleika Woody Allen og hljómsveitar í nýju menningar- og listahöll þeirra Miamibúa, Carnival center. Það voru afar skemmtilegir tónleikar og greinilegt að Woody er meira til lista lagt en kvikmyndaleikur og leikstjórn. Karlinn var alveg jafn aulalegur á sviði og hann er í myndum sínum. Mjög skemmtileg fígúra þar á ferð....

Hittum svo Davíð og Gustavo milli jóla og nýárs en Davíð var hér með okkur í Miami síðasta vetur. Nú var hann hins vegar mættur sem almennur túrhestur ásamt móður sinni og litla bróður. Þau fengu lánaða íbúð á besta stað á South beach á 30. hæð með ótrúlegu ústýni og aðstöðu. Þar eyddum við áramótunum með þeim og höfðum mjög gaman að. Fórum m.a. niður að Ocean Drive þar sem voru mikil hátíðarhöld og skemmtilegheit. Þau ykkar sem hafið áhuga á að sjá myndir frá þessum síðustu dögum er bent á að kíkja á myndasíðuna okkar en þar eru fullt af myndum að vanda.

Næst á dagskrá er tólf daga ferðalag um Kaliforníu en við fljúgum til San Fransisco á morgun og verðum í þeirri borg í fjóra daga. Förum svo í eina nótt í vínhéruðin þar í kring og höldum því næst til vinkonu Ernu, Láru, sem er búin að bjóða okkur að gista hjá sér. Hún býr í litlum bæ sem heitir Turlock en þaðan er m.a. stutt að fara í hinn fræga Yusimite þjóðgarð og ætlum við að skjótast þangað.

Bóndinn er svo búinn að opna nýtt blogg fyrir sínar persónulegu hugleiðingar um menn og málefni og ef þið hafið áhuga þá hvet ég ykkur til að líta á nýja bloggið: www.sigfus.blog.is. Þar verða aðrar áherslur en hér, meira skrifað um þjóðmál og pólitík.......

Wednesday, December 27, 2006

Hafið bláa hafið

Siglingin um karabíska hafið verður lengi í minnum höfð. Hreint út sagt stórkostleg ferð. Óhætt að mæla með slíku ferðalagi fyrir þá sem geta drifið sig. Þriggja rétta máltíðir á hverju kvöldi, sólbað á dekkinu, dekur í spa stofunni, frábær líkamsræktaraðstaða, sundlaugar, barir, golfhermir, púttvöllur og ég veit ekki hvað. Áfangastaðirnir voru líka hver öðrum skemmtilegri og snorkluðum við t.d. í St. Marteen innan um ýmsa furðufiska karabíska hafsins. Í kvöldverðunum sátum við alltaf á sama borði, höfðum sömu þjónana og sömu borðfélagana. Við vorum mjög heppin með borðfélaga sem er kannski eins gott því heldur væri það leiðinlegt að sitja uppi með eitthvert leiðindalið í löngum þrírétta máltíðum sjö kvöld í röð.

En kíkið endilega á myndabloggið en það er það umfangsmesta til þessa enda af nógu að taka.

Saturday, December 16, 2006

Shakira, aðventan og fleira....

Það hefur ýmislegt á daga okkar drifið að undanförnu. Shakira-tónleikar, jólaboð í vinnunni hjá Ernu, sundlaugarpartý í byggingunni og margt fleira. Ætla ekki að hafa mörg orð um þetta allt saman en bendi á myndabloggið þess í stað.

Húsbóndinn lauk í gær við síðustu ritgerðinni á þessari önn og Erna vann síðasta vinnudaginn hjá Holland & Knight. Við ákváðum því að halda uppá þessa áfanga og skruppum út á stað hér í nágrenninu sem ber hið skemmitlega nafn Mama mia. Þar hittum við ansi hress hjón, karlinn frá Kúbu og hún frá Brasilíu. Samskipti okkar byrjuðu á því að þau heimtuðu að við fengjum okkar af keti sem þau höfðu pantað sér og gáfust ekki upp fyrr en við samþykktum að smakka á kræsingunum. Svo heimtaði sá kúbverski að fá að gefa okkur drykki og hætti að sjálfsögðu ekki fyrr en hann fékk það í gegn. Þau reka nokkrar fatahreinsanir hér í nágrenninu. Hann hafði flúið Kúbu árið 1993 en þá réri hann á bát yfir til the Keys.

Lauk þessum samskiptum okkar við þau hjón á þá leið að skipst var á kontaktupplýsingum og hann heimtar að við gistum í strandíbúð þeirra þegar við komum í heimsókn til Miami eftir að við verðum flutt til Íslands. Humm, svona fer áfengið með menn..... En ansi skemmtilegt kvöld verður að segjast og skemmtileg hjón.

Nú erum við að fara af stað með leigara til Fort Lauderdale þar sem Jewel of the seas bíður okkar og ætlar að ferja okkur í sjö daga um Karabíska hafið. Aldrei að vita nema að eitthvað verði bloggað á þeim tíma þar sem það ku vera netsamband og aðstaða um borð til að stunda slíkt.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Heyrumst heil á því nýja....